Skilmálar
Þessir skilmálar eiga við um öll kaup á vörum í gegnum vefverslun Orðabliks.
1. Almennt
Orðablik ehf. (hér eftir „Orðablik“) rekur vefverslun á netfanginu ordablik.is. Kaupandi telst hafa samþykkt þessa skilmála við kaup á vöru.
2. Verð og greiðsla
Öll verð í vefversluninni eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt. Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt og er ekki hægt að ljúka pöntun fyrr en greiðsla hefur borist.
3. Afhending
Vörur eru sendar með Íslandspósti eða öðrum samstarðsaðila eins fljótt og auðið er eftir að greiðsla hefur borist. Áætlaður afhendingartími er 2–5 virkir dagar innanlands.
4. Afturköllun og skil
Samkvæmt lögum um fjarsölu hefur kaupandi rétt á að skila vöru innan 14 daga frá móttöku án þess að tilgreina ástæðu. Varan skal vera í upprunalegri, ónotaðri stöðu og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi ber kostnað við endursendingu nema varan sé gölluð.
5. Gallar og ábyrgð
Orðablik ber ábyrgð á göllum sem rekja má til framleiðslu eða efna. Vinsamlegast hafið samband við okkur innan sjö daga ef varan kemur gölluð.
6. Persónuvernd
Orðablik vinnur persónuupplýsingar í samræmi við íslensk lög um persónuvernd og friðhelgi einkalífsins. Upplýsingar eru einungis notaðar til að afgreiða pantanir og hafa samband við kaupanda ef þörf krefur.
7. Breytingar á skilmálum
Orðablik áskilur sér rétt til að uppfæra skilmálana. Kaupandi telst hafa samþykkt þá útgáfu skilmála sem var í gildi við kaup.
Ef þú hefur spurningar um skilmálana, sendu okkur línu á ordablik@ordablik.is.
